Dagný Björk
SMSDagný Björk Arnljótsdóttir
Ég var að skoða sms-in í símanum mínum og þar fann ég fullt af fyndnu dóti. Ég fæ nefnilega mjöög sjaldan sms hérna þar sem fáir þurfa að senda mér smáskilaboð hingað til Spánar svo smsin í símanum mínum er nokkuð gömul.Nokkur skemmtileg:
Arna: Vid íhugum tad takk kæqlega!
Arna svaraði mér með þessu þegar ég sagði henni að ég væri á Salsaklúbbnum, væri að fara að setja símann í geymslu og að þær gætu komið ef þeim langaði. Mér fannst þetta frekar neikvætt svar og heMy yrði svo seinna af hverju Örnu langaði ekki á Salsaklúbbinn og vildi heldur ekki fá Ragnhildi og Erlu með sér á annan bar! Þetta var alveg yndislegt kvöld og ég held að við flestar höfum gert okkur að algjörum fíflum.
Dagný: Við verðum að fara
Þetta sendi ég Ragnhildi eitt fimmtudagskvöldið. Ég held ég fari ekki nánar út í þá sálma. Hahh
Erla Karls: My dream is to fly over the rainbow so high. mig langar í dagny
Djammið hjá stelpunum mínum í Rvk eftir að þær fóru frá Barcelona. Krúttlega krúttlega Erla.
Ragnhildur: This sex is on fire. Kvedja fra islandi! Semsagt fra mer, örnu, sigga, loga og janna. :)
Þetta var líka ótrúlega krúttlegt hjá þeim. Fékk kitl í magann og langaði svo mikið að vera hjá þeim að drekka góðan bjór og spjalla. Jafnast ekkert við það.
Valgerður: Haha æji tid erud svo kruttlegar!! Ja eg elska ykkur allar og sakna ykkar hrædilega mikid! :* og mikid finnst mer gaman ad heyra ad eg hafi getad kennt einhverjum ad pissa standandi :) tad er lifsnaudsynlegt :)
Arna sendi Valgerði sms í Barcelona en gleymdi ad segja hver væri að senda henni og átti ekki inneign til að senda annað. Svo ég sendi henni sms og fékk þetta tilbaka. Ég veit ekki alveg söguna á bakvið það að pissa standandi en mér fannst þetta fyndið.
Dagný: Okei vid vorum ad koma a stadinn eftir klukkutima labb! Og vid faum 30 min til ad borda og ta förum a flamenco! hahaha
Ég fór á flamenco kvöld með skólanum og ákvað að fara í hælaskóm eins og svo margar aðrar stelpur sem fóru. Okkur datt ekki í hug að staðurinn yrði langt frá, sem hann var ekki en maðurinn sem fór með okkur tók pínu krók. Bara pínu samt. 45 mínútur aukalega.
Védís: Haha snulla!minnir mig bara a ykkur og sumar 2007. Myndi oska ad thu værir líka ad koma a klakann i næstu viku.
Ég var að borða Malteasers og ákvað að láta Védísi vita af því. Við áttum nokkrar góðar Malteasers stundir í Grænuhlíð! og Doritos stundir. Feitu við :P
Eygló: er rutan lögd af stad? Tihi... bara smastund!! Eygló
Í rútunni á leiðinni til Eyglóar og Dóru!!! Svo gaman. Svo gaman.
Tinna: Haha já dagný mín! Ég man eftir því! :) það var gaman.. Við vorum einmitt að tala um þig og að það vantaði þig. Ég elska þig dagný! Bið að heilsa mike :)
Tinna krúttlega! Þetta er reyndar nýtt sms en það er krúttlegt. Mike fékk sér sambuca í bjór og þá fór ég að segja honum frá því þegar Tinna kveikti í barnum í Sjallanum með logandi sambuca skotinu sínu. Sjitt það var fyndið.
Dagný: We r at the gato negro! Come there! :)
Ekki óalgeng setning í Barcelona. Mmmmm.
Dagný: Hahaha tid getid aldrei giskad a buninginn minn! en eg keypti bara nokkra aukahluti engan alvöru buning! ;)
Halloween búningaleit með Lacie! Það var ótrúlega fyndið. Lacie hjálpaði mér að finna hinn fullkomna búning. ZombieGayPirateNinjaCop! eða eitthvað álíka. Man þetta ekki alveg núna. Frábært Halloween kvöld líka :P
Komið gott í kvöld!
Dagný sem leiðist. Augljóslega.
Useless informationDagný Björk Arnljótsdóttir
Þið sem hafið komið hingað heim til mín hafið kannski litið aðeins inn í herbergið hennar Stefaníu. Það er eins og regnbogi hafi sprungið þarna inni. Hún á óteljandi bangsa í öllum stærðum, gerðum, litum og krúttleika, óteljandi barbí/Bratz/PollyPocket/MyScene dúkkur, óteljandi glingurdót og virkilega mikið af óþarfa BurgerKing/McDonalds/KFC drasldót sem engum finnst skemmtilegt. Svo við systurnar tókum okkur til og tókum herbergið hennar í gegn. Mér fannst nokkuð gaman að fara í gegnum allt barbídótið hennar því þar fann ég fullt af drasli sem ég átti þegar ég var lítil. Á botninum í kassanum var uppáhaldsdúkkan mín, klædd í drusluföt með allt hárið í einni stórri flækju. Mér fannst það pínulítið sorglegt svo systir mín klæddi hana í fínan kjól og hún fékk að vera efst í kassanum með hinum dúkkunum. Ég held það breyti samt lítið samfélagsstatusnum hennar, hún er og verður alltaf gamla dúkkan sem enginn vill leika með. Hvernig getur gamla barbí keppt við lauslátu bratz druslurnar? Og með "barbí" meina ég stelpur á mínum aldri og með "lauslátri bratz druslu" á ég við busastelpur. haha djók. Fattaði þetta bara þegar ég las barbí setninguna aftur.Vitiði hvaða mynd er í sjónvarpinu núna? 10 things I hate about you. Hún er svo æðisleg! En mamma nennir ekki að horfa á hana. Finnst hún leiðinleg. Kommon? Heath Ledger Bad Boy sem verður svo yndislegur? Getur ekki klikkað. Ég sá samt á imdb.com að það sé að koma ný 10 things I hate about you. Jább... glatað.
Ég er byrjuð í ræktinni með mömmu og ég verð bara að segja að ég er bara nokkuð ánægð með sjálfa mig. Ég hef sjaldan verið svona dugleg. Kannski finnst mér það bara vegna þess að hinar gömlu konurnar í ræktinni geta ekki neitt. Ókei það er ekki bara gamalt fólk í ræktinni. Á milli fimm og sjö koma stóru strákarnir og lyfta. Um daginn labbaði einn spánverjinn á sterunum inn og öskraði eitthvað á félaga sinn sem var í hinum enda salsins, stökk á eitt tækið og byrjaði að lyfta, öskraði aðeins meira svo allir tækju örugglega eftir honum og bætti við lóðum. Þetta fannst mér sérstakt. En svo er stelpa í ræktinni sem er með svo fallegt hár! Það er mjög sítt og fallega liðað, pínulítið ljóst en líka pínulítið rautt. Mig langar í þannig hár.
Ég hef verið að fylgjast með fréttunum núna í sambandi við öll þessi mótmæli og mér finnst þetta bara nokkuð gott hjá fólkinu! Ég er stolt af þeim sem standa þarna úti tímunum saman og berja í potta. Sýnir bara að við látum ekki ganga yfir okkur! En svo finnst mér þeir sem eru þarna greinilega bara til þess að reyna að koma á einhverjum átökum við lögregluna algjör fífl. Þetta er svona fólk sem veit ekki rassgat hvað er í gangi og vill bara pirra lögguna. Kastið eggjum í alþingið, lemjið í potta og öskrið en ofbeldi þarf ekki að vera með í mótmælum. Þessir lögreglumenn eru að vinna sína vinnu, ef þeir væru ekki þarna væru einhverjir vitleysingar búnir að gera eitthvað sem þeir sæju eftir.
Jæja... held ég sé búin að tjá mig nóg hérna.
Que te vayas bien :)
LöggogbófiDagný Björk Arnljótsdóttir
Ég var búin að skrifa ágætis texta um gærkvöldið mitt en mamma þurfti þá að fara í tölvuna og slökkti svo á öllu. Þessar mömmur!Það sem ég skrifaði hérna var um lögregluþjónana hérna á svæðinu. Fyrstu kynni mín af þeim voru í gær og ég hef sjaldan verið jafn hrædd og paranoid við lögguna. Ég sat í framsætinu í bílnum hjá Mike og Gareth var í aftursætinu mín megin. Allt í einu blikkar löggan okkur, en Mike sagði okkur svo eftir allt þetta að löggan hafi elt okkur alveg frá Cabo Roig, þar sem við náðum í Gareth úr vinnunni. En allavega, Mike stöðvar bílinn og rennir niður rúðunni. Lögregluþjónninn lýsir vasaljósinu sínu inn í bílinn og biður um ökuskírteini og skráningarskírteini bílsins líka. Á meðan hann var að skoða þessa pappíra kemur annar lögregluþjónn mín megin, með vasaljósið sitt og beinir því beint í augun á mér. Ég lít undan og þegar hann er búinn að lýsa vasaljósinu sínu í svolítinn tíma snýr hann sér að Gareth. Gareth skrúfar niður rúðunni hjá sér og löggan biður hann um persónuskilríki. Gareth gefur honum ljósrit af passanum sínum (ekki eins og maður gangi bara með passann sinn alltaf í vasanum) en lögregluþjónninn var ekki sáttur:
L: Hvað er þetta?
G: ljósrit af passanum mínum.
L: Það er enginn stimpill á þessu.
G: uuu... hvernig stimpill á að vera á þessu?
L: Lögreglustimpill! Það þýðir ekkert að vera með bara ljósrit, þú verður að fara á lögreglustöðina og láta stimpla á þetta blað! Þú gætir þess vegna bara verið með ljósrit af einhverjum passa!
G: uuu.. já ég vissi það ekki.
L: nei nei. HVar áttu heima?
G: La Zenia.
L: Hvar í La Zenia? Hvaða gata? Hús númer hvað?
G: La zenia... blablabla
L: Hefur þú verið handtekinn áður?
G: Nei aldrei.
L: Aldrei verið handtekinn nei...
G: Nei aldrei.
L: Það er 300 evru sekt að drekka áfengi annars staðar en í heimahúsum eða á börum. (Gareth tók bjór með sér í bílinn)
G: ó. uuu... ég vissi það ekki.
L: Já þú verður bara að muna það næst!
Og þá snýr hann sér að mér. Persónuskilríki? Jámm eða ég rétti honum debetkortið mitt því, ótrúlegt en satt, geng ekki með passann minn á mér. En hann var ekki ánægður. "Þetta er bara bankakort. Ég hef ekkert við þetta kort að gera, þú átt að nota þetta í bankanum þínum! Þetta er gagnslaust fyrir mér!" og henti kortinu aftur í mig. Ég reyndi að umla afsökunarbeiðni og segja honum að nafnið mitt sé allavega þarna en hann vildi ekki einu sinni reyna að skilja mig. Á meðan var hinn lögregluþjónninn sallarólegur hinum megin að spjalla við Mike. Þessi ótrúlega ruglaði lýsti vasaljósinu sínu enn í bílinn og oftar en ekki beint í andlitið á mér. Ég bjóst eiginlega bara við því að vera dregin út úr bílnum og þeir myndu leita á mér... Við höfðum ekki gert neitt rangt, þetta var bara venjubundið eftirlit en samt sem áður þurfti þeir að koma fram við okkur eins og við værum eftirlýstir glæpamenn. Kannski er þetta bara svona hérna á Spáni... pffff
Og hvenær var bannað að drekka áfengi úti á götum bæjarins??? Ríkið væri eflaust miklu ríkara ef fólk væri rukkað um 300 evrur í hvert skipti sem það gerist!
AðfangadagurDagný Björk Arnljótsdóttir
Í gær var Aðfangadagur og sá dagur var sá mest stressandi sem ég hef upplifað. Aldrei hef ég verið mikið í því að stressa mig á jólunum, hef alltaf tekið þessu nokkuð rólega þó ég eigi eftir að kaupa eina jólagjöf. Aðfangadagurinn hérna á Spáni fer oftast í það, ég, Erla, Ingvar og Örn skellum okkur þá kannski í Habaneras og klárum það sem við eigum eftir að kaupa. Þegar við erum komin heim þá hjálpa ég kannski aðeins til í eldhúsinu og fer svo bráðlega að tía mig í fínu fötin. Í gær var dagurinn ekki svona. Ég vaknaði klukkan níu, skellti mér í sturtu, klæddi mig og borðaði morgunmat. Um hálfellefu leytið fórum ég og Örn í Mackintosh og rósakáls leiðangur því þetta tvennt fæst bara ekki hérna í spænskum verslunum. Eina búðin sem við áttum eftir að leita í seldi því miður ekki Macintosh en þar fengum við Roses sem er mjög svipað (nei eiginlega ekki samt) og Macintosh. Þar fengum við einnig rósakál! Mission 1 completed.Pabbi lenti í Murcíu klukkan 12.15 svo leiðin lá næst þangað. Ég rataði ekki alveg en ég fékk GPS tækið hjá mömmu svo ég myndi ekki villast. Kerlingin í tækinu lét mig fara svo asnalega leið. Allt í einu var ég komin á einhverja göngugötu í einhverjum bæ sem ég veit ekki einu sinni nafnið á. Ég og Örn fengum nett pirringskast en ákváðum samt að halda áfram eftir leiðbeiningum kellingarinnar í GPS tækinu. Loksins komumst við á flugvöllinn og vorum meira að segja á góðum tíma. Þessi leið tók svona 45 mínútur en þegar pabbi keyrði heim og tók hraðbrautina var hann í svona 20 mínútur. GPS kellingin var nefnilega styllt á stystu leiðina en í km er bæjarleiðin styst, en þar má náttúrlega bara keyra á 50. Mission 2 completed.
Pabbi þurfti að skreppa í klippingu strax og við komum í bæinn okkar og sagði okkur svo að hann hefði ekki keypt möndlugjöf eins og hann ætlaði að gera á Standsted, hann þurfti nefnilega að standa svo mikið í röð. Jæja. Svo ég og Örn vorum enn send af stað. Við fórum alla leið niðrí Carrefour, stóru Carrefour, og ætluðum bara að grípa eitthvað. Síðustu jól hafa möndlugjafirnar yfirleitt verið Singstar diskur svo við fórum beint þangað. En nei. Singstar kostaði 40€ en við vorum bara með 30€ svo við lölluðum í spiladeildina. Öll spilin voru á spænsku en við fundum eitt spil sem allir hafa gaman af, þeir sem kunna spænsku og þeir sem hafa bara verið of latir til að læra hana. Jenga. Jenga kostaði samt 30€, kom mér pínu á óvart þar sem það samanstendur af litlum spýtubútum. En jæja, við nenntum ekki að velta okkur upp úr því og keyptum því þetta frábæra spil. Jenga. Og svona svo ég skjóti því inn í þá vann ég möndluna! Í fyrsta skipti síðan ég var 4-5 ára. Misson 3 and 10 completed.
Við komum loksins heim um tvö leytið og þá þurfti að pakka ýmsum gjöfum inn og búa til aðrar. Ég skannaði og prentaði nokkar myndir af foreldrum mínum síðan þau voru lítil og setti í stóran myndaramma. Voðalega sætt. Þetta átti reyndar að vera afmælisgjöf til mömmu í sept, svo átti þetta að vera brúðkaupsafmælisgjöf fyrir þau í okt, en endaði svo í jólaafmælisgjöf. Þau voru voðalega ánægð. Misson 4 completed.
Þar sem systir mín vildi vera sæt á jólunum bað hún mig að slétta á sér hárið sem ég gerði. Klukkan orðin hálf fjögur. Mission 5 completed.
Við fengum mjólkurkassa gefins frá Carrefour þegar við versluðum þar á þriðjudaginn því hún var að verða útrunnin, tilvalin í matargerð sögðu starfsfólkið. Mamma var þegar búin að kaupa annan mjólkurkassa svo hún ætlaði að láta ömmu fá hann ásamt öðru dóti sem pabbi kom með frá Íslandi. Ég var send í það að fara til ömmu með dótið, pakka inn pakkanum hans Arnar (sem var heima hjá ömmu) og fara í búð að kaupa kokteilber og 5 Mars stykki. Ég byrjaði á búðinni, fann einhver ber í dós sem hétu kokteilber (ekki það sem pabba vantaði...djöfull) og hljóp svo í nammideildina. Eitt Mars súkkulaði eftir. Heppin ég. En ég fann poka með litlum Mars í svo ég keypti hann bara. Þegar ég keyrði fram hjá ömmu sá ég að þau voru ekki heima. Frábært. Svo ég held heim aftur. Rétt fyrir fjögur hringir amma og lætur vita að þau séu komin heim og aftur fer ég af stað. Ég var ekki lengi að pakka inn pínu stórum kassa af flatskjá, hendi honum inn í bíl og bruna heim. Klukkan hálf fimm og ég ekki byrjuð að gera mig til! Einn og hálfur tími í stefnu gott fólk! En allavega þá tókst þetta. Mission 6 completed.
Þegar heim er komið þarf pabbi pínu hjálp inn í eldhúsi. Ég var ekki lengi að skera niður nokkur epli og hendast svo upp með allt snyrtidótið og byrja að mála mig svo það væri allavega búið. Ég fékk lánað meik hjá mömmu sem virtist vera allt í lagi á hendinni á mér en þegar ég setti það framan í mig varð ég gul. Djöfull. Klukkan orðin fimm og ég þurfti að þrífa það af. Áður en ég gat gert það þá þurfti ég að skjótast og ná í Steph hans Arnar og kaupa kjötkraft í leiðinni (jább nei, það gengur ekki að kaupa alla hlutina í einu, þá eru ekki jól). Ég var komin heim aftur korter yfir fimm og settist þá niður við skrifborðið hennar Stebbu og byrjaði að mála mömmu, því ég var búin að lofa henni. Ég var reyndar ekki lengi með hana, hún er náttúrlega svo falleg en ég var enn eftir, ennþá gul í framan. En mér tókst að mála mig á met tíma. Þá var það bara hárið! Djöfull. Klukkan orðin korter í sex og flest allir tilbúnir í jólin. Amma og afi meira að segja komin og sest niður í stofunni með rauðvínsglös. Ég slétti hárið á mér á 14 mínútum og setti skraut í það á 5 mínútum. Ahhh reddí. Neibb kjóllinn. ahhh núna reddí. Mission 7, 8 and 9 completed.
Það sem eftir var af kvöldinu var mjög rólegt og þægilegt. Ég vann möndluna eins og ég sagði frá hérna í byrjun og maturinn var með eindæmum góður. Eftir matinn tókum við upp pakkana við mikinn fögnuð Stefaníu. Hef reyndar aldrei séð hana svona æsta. Ég hélt þetta minnkaði með árunum! En ég fékk fullt af fallegum gjöfum, reyndar miklu fleiri en ég bjóst við og þakka ég kærlega fyrir mig. Ég ætla ekki að ljúga, þessi jól voru mjög tómleg án Sillu, Ingó, Erlu og Ingvars. Engin Erla til að hlæja að fyndnum gjöfum með og stríða Stebbu, enginn Ingvar til að koma með skrýtinn fróðleik sem enginn hefur áhuga á, enginn Ingó til að rústa í spilum og engin Silla til að hlæja með.
En allavega þá óska ég öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári! Borðið á ykkur gat og drekkið nóg af malti og appelsíni, fyrir mig líka! Takk fyrir allt gamalt og gott, þetta ár hefur verið frábært í alla staði.
...She'll loan you her toothbrush, she'll bartend your party...Dagný Björk Arnljótsdóttir
Systir mín er með spánarmikilmennskubrjálæði á háu stigi. Við vorum að labba heim frá ömmu um daginn þegar Stefanía tilkynnir okkur mömmu að hún væri svooo fegin að búa á Spáni en ekki á Íslandi. Okkur fannst ekkert að því en svo fór hún að útskýra fyrir okkur af hverju hún væri svona ánægð með þetta val foreldra okkar, "því ef ég væri á Íslandi þá myndi ég ekki læra eins mikið". Ég leit á hana með spurnarsvip og spurði svo hvað hún væri eiginlega að meina, hvort hún meinti að hún kynni ekki spænsku eða deilinguna sem er kennd hérna (allt öðruvísi uppsett haha)? Neinei það var ekki það, henni fannst bara skólarnir á Íslandi ekki kenna neitt, skólarnir þar vissu minna. Ég var ekki alveg sátt við þetta svar og spurði hana þá hvort henni fyndist ég vera heimskari en hún? Hún velti þessu aðeins fyrir sér og sagði svo já, henni fyndist það. Hún var nefnilega búin að taka eftir því að þegar Örn spurði mig að einhverju þá vissi ég ekki svarið. Já, ég var frekar hissa, systir mín hélt ég væri heimsk. Já, hélt, þátíð, því ég náði að útskýra af hverju ég gat aldrei hjálpað bróður mínum. Í fyrsta lagi því öll hans heimavinna er á spænsku og þó ég sé náttúrlega með framúrskarandi spænskukunnáttu þá fann ég mig ekki alveg í hans heimavinnu. Í öðru lagi þá voru spurningarnar oftast um heimspeki og hver kann ekki neitt í heimspeki? Já einmitt, ég. Svo ég gat ekki hjálpað honum mikið þar. Og í þriðja lagi þá er hann á einhverskonar hönnunarlínu að læra grafíska hönnun, svo við erum ekki alveg á sama báti þar heldur. Stefanía sagðist skilja þetta núna, ef Örn væri að læra lögfræði eða sálfræði þá gæti ég hjálpað honum, ég bara kynni öðruvísi hluti en hann. Þetta barn, hún verður eitthvað óþolandi í framtíðinni!Mér er alltaf kalt á tánum. Þó ég gangi í sokkum og í inniskóm þá er ég alltaf að frjósa. Þegar ég fer undir sæng á kvöldin þá taka tærnar mínar svona klukkutíma í það að hitna. Brrrr... það er kalt hérna.
Heyrðu já ég fór í klippingu í gær hjá fimmtugum (kannski fertugum) manni sem heitir Alexander og er þjóðverji. Ég ákvað að treysta honum fyrir hárinu mínu því öll fjölskylda mín fer til hans í klippingu og hefur bara komið nokkuð vel úr því. Ég get ekki sagt að ég sé mjög sátt við hárið á mér. Þetta var svo skrýtið, fyrst þvoði hann á mér hausinn og nuddaði sem var mjög gott og ég hélt þetta yrði bara allt í lagi. Svo settist ég í stólinn og hann byrjaði að klippa. Ég var auðvitað búin að segja honum að ég vildi halda í síddina og hann ætti bara að klippa lítið af hárinu. Hann klippti bara eitthvað! Tók einn lokk hér og einn þar og klippti. Hann pældi ekki einu sinni í skiptingunni minni heldur gerði bara eitthvað. Svo allt í einu var hann búinn, rétti mér hárblásara og sagði mér að blása á mér hárið (því það var mjög blautt eftir hárþvottinn) og gleymdi víst að sýna mér hvernig hárið á mér var aftaná. Ég tók við hárblásaranum hikandi og reyndi að skipta hárinu á mér aftur eins og það var, blés það eitthvað smá og afþakkaði hárspreyið sem hann setti á borðið fyrir framan mig. Ég leit varla í spegil áður en ég fór en þegar ég kom heim og sá stutta hárið mitt langaði mig til þess að gráta. Af hverju? Af hverju þarf þetta alltaf að koma fyrir? Ég fer ekki annað en á Passion núna.
Á morgun fæ ég NIE númerið mitt (spænsk kennitala) og þá get ég kannski leitað að vinnu af alvöru, er ekki búin að vera dugleg við það... einhverjar hugmyndir um það hvað ég gæti farið að gera?
Poppið mitt og sjónvarpið er tilbúið!
Dagný kveður
Og mig dreymirDagný Björk Arnljótsdóttir
Afi minn spurði mig um daginn hvort ég væri á lóðaríi. Amma hneykslaðist og mamma hló.Mig hefur dreymt ótrúlega skrýtna drauma síðustu vikur og stundum fatta ég ekki alveg hvort ég sé vakandi eða sofandi. Í nótt dreymdi mig að ég væri ólétt. Ég fór með rútu frá Spáni til Reykjavíkur (sem tók ekki nema svona tíu mínútur) og í heimsókn til Erlu frænku. Hún bjó í mjög tómri íbúð en var að fara að flytja eitthvað annað. Þegar ég hitti hana sýndi ég henni bumbuna mína og hún varð pínu skrýtin. Fór að stríða mér eitthvað og hló eins og brjálæðingur. Svo þegar ég ætlaði á klósettið ætlaði hún ekki að leyfa mér það nema hún fengi að taka mynd af mér á klóinu, og helst vildi hún að sæist í bumbuna! Þetta var pínu sérstakt en maður veit aldrei hvaða vitleysu Erlu dettur í hug. Þegar Erla var loksins hætt þessu rugli fórum við í heimsókn til Sillu frænku og alltaf hélt ég um óléttubumbuna mína, strauk henni og fann stundum einhverja hreyfingu. Þegar ég vaknaði tékkaði ég strax á maganum á mér og því miður var ég ekki með neina óléttubumbu. Mér leið svo ótrúlega vel í draumnum að ég varð pínu svekkt að vera ekki ólétt, en svo áttaði ég mig á því að mig langar ekkert að vera ólétt, allavega ekki núna.
Við förum alltaf í mat til ömmu á kvöldin og á leiðinni þangað sé ég alltaf sama bílinn Hann er með númerið HOM(eitthvað merki)MI 105. Mér finnst þetta alltaf jafn fyndið.
Ég þoli ekki Harry, hamsturinn hennar Stebbu. Hann er gjörsamlega óþolandi dýr. Hann gerir ekki neitt á daginn, hann kemur ekki einu sinni út úr litla húsinu sínu en svo á nóttunni, jáhh, þá er finnst honum ekkert skemmtilegra en að laga til hjá sér, færa hjólið sitt til og frá og krafsa í draslinu sem er í búrinu. Ótrúlega leiðinlegur hamstur. Tjahh ég veit nú samt ekki um skemmtilegan hamstur...
trúið því.... bloggDagný Björk Arnljótsdóttir
Hér er ég komin aftur. Ég hef kviðið því svo mikið að blogga að ég hef ekki farið inn á síðuna mína svo dögum skiptir. Ég ætla ekki að blogga um Barcelonaferðina okkar því ég einfaldlega get það ekki. Það var bara of gaman svo ég ætla ekki að eyðileggja sögurnar með lélegri ritun! heheAnnars er allt ágætt að frétta héðan, rétt í þessu var ég að panta flugið mitt til Parísar þann 30. desember og aftur til Spánar þann 6. janúar! Rúmlega vika með mínum heittelskuðu krúttum í París, ljúft líf!
Ég veit ekki hvað ég get sagt ykkur, dyggu lesendur (HAH!) en það er ekki mikið að gerast á Orihuela Costa svæðinu. Mike náði að draga mig út úr húsi í síðustu viku. Þegar hann hringdi horfði ég á símann og sagði "ugh" upphátt og sleppti því að svara, ég nennti engan veginn út. En þegar hann hringdi aftur kallaði mamma úr eldhúsinu "Svaraðu drengnum!" svo það er greinilegt að hún vill fá mig úr húsinu.
En Mike og Gareth komu og sóttu mig og við fórum á rúntinn. Mike þurfti að erindast eitthvað og það tók þrjá tíma en það var í lagi því ég hafði góðan félagsskap (Gareth er ekki voðalega mikið fyrir spjall!). Einhver stelpa sem hann þekkir var líka í bílnum, í aftursætinu, (ég var í framsætinu) og í hvert skipti sem bíllinn stoppaði teygði hún hendina sína yfir í sætið hans beltamegin og lagði hendina yfir bringuna á honum. Ég náði skilaboðunum, engar áhyggjur, hef ekki mikinn áhuga á gaurnum þínum! haha Ætli stelpan hafi ekki verið með óttalegar áhyggjur af því að skilja okkur tvö ein eftir, því hún þurfti að fara heim klukkan níu, 16 ára krakkar þurfa sinn svefn!
Annars eru ég og mamma búnar að baka nokkrar gerðir af jólasmákökum. mmmmm þó mér fynnist jólin ekkert vera að koma...
ChupitosDagný Björk Arnljótsdóttir
Ég var ótrúlega hress í dag þó að ég hafi verið úti til 6 - 6.30 í morgun. Við fórum á uppáhalds staðinn okkar í augnablikinu, Razzmatazz, þar sem bara skemmtilega tónlist er spiluð. Já. Einungis skemmtilega tónlist. Ég fer ekki ofan af því. Kvöldið byrjaði upp á þaki eins og vanalega og þar söfnuðum við fólki saman á djammið. Ég fékk smá Brekkugötu fíling þegar fólkið kom allt í íbúðina okkar áður en við fórum út úr húsinu. Það var voða gaman. En við erum komnar í þá rútínu að byrja alltaf á Gato Negro áður en lengra er haldið. Ég er búin að setja mér reglu: ég má ekki drekka neitt sem kveikt er í. Það býður bara upp á allsvakalegan hausverk daginn eftir. Etir eitt skot á Svarta kettinum fórum við á Razzmatazz og dönsuðum og dönsuðum og dönsuðum. Vorum örugglega 15 - 20 saman og það var bara helvíti skemmtilegt. Það eina sem pirraði mig við þetta kvöld voru ógeðslegir karlmenn. Karlmenn sem nudduðu miðsvæðinu í rassinn á þér, eða einhverjum öðrum gaur, gaurar sem snertu hárið á þér í gríð og erg og settu lappirnar sínar á milli fótanna á þér. Viðbjóður.Ég hef samt eiginlega bara sagt frá ógeðslegu gaurunum sem ég hef hitt. Það eru samt fullt af fínum gaurum hérna, og nokkrir sem standa meira að segja upp úr en það er alltaf gaman að tuða yfir þeim ógeðslegu! haha
Í dag vaknaði ég um eitt leytið, skellti mér í sturtu, lagaði aðeins til og vaskaði upp eftir gærkvöldið og beið eftir að stelpurnar vöknuðu. Lina kom svo í stutta heimsókn og spurði hvort við vildum ekki fara á ströndina með henni, Elenu og Miku (eða hvernig sem það er nú skrifað) og við gerðum það. Það var ekkert svakalega heitt en ég og Lina skelltum okkur í sjóinn. Það var ótrúlega frískandi og gott, sérstaklega þar sem helgin einkenndist meira og minna af drykkju eða þá að liggja í rúminu með hausverk.
Manuel, eða Afi eins og við viljum kalla hann núna, er næturvörðurinn hérna í blokkinni. Hann er æði. Á þriðjudaginn ætlar hann að elda fyrir okkur Paellu! Við fórum nefnilega út að borða paellu um daginn og urðum fyrir pínulitlum vonbrigðum... eða ég allavega. Ég hélt að það væri hægt að fá eitthvað annað en sjávarmat í þennan rétt en á staðnum sem við fórum á (sem var kannski ekkert sérstakur) var bara hægt að velja á milli þess eða grænmetis. Við sögðum Manuel frá þessu og þar sem hann er nú meistari í paellu gerð ætlar hann að gera upprunalegu uppskriftina sem er með kjúkling. Ég get ekki beðið.... mmmm...
Jæja... held að pizzan okkar sé að verða tilbúin. Við erum meistarkokkar hérna. Óheppin þið að komast ekki í mat til okkar.


MIERDA!Dagný Björk Arnljótsdóttir
Í frímínútum í dag settumst ég og Arna í garðinn með nestið okkar. Sólin skein, hitinn var góður og konan sem sat á móti okkur var að borða samloku. Ég kláraði heimalagaða nestið mitt (samloka) og Arna var að borða epli. Vegna veðurs var mikið af fólki í garðinum, fólk var að reykja, aðrir að gera teygjuæfingar og sumir að tala við nunnuna sem heitir "Caroline sem elskuð er af Jesú". Ég er ekki að djóka með þetta. Hún skrifaði nafnið sitt svona á marga lista. En allavega. Arna og ég sátum í mestu makindum þegar dúfa skeit allt í einu á Örnu. Ég var svo hissa að ég vissi eiginlega ekki hvað ég átti að gera! Arna greyið fékk dúfukúk á hausinn og í buxurnar, kannski annars staðar líka! Ég fékk bara pínulítinn kúkadropa á gallabuxurnar mínar og pínulítið á töskuna mína. En þetta var svo fyndið! Ég held ég hafi bara ekki fattað að hlæja. Enginn annar tók eftir þessu, nema þeim hafi bara verið alveg sama. HmmmSíðan við komum hingað hefur bara ein sjónvarpsstöð verið í gangi. Það er tónlistarstöð þar sem allskonar tónlist er spiluð. Ég var alltaf að sjá myndband með Lykke Li sem er sænsk söngkona og lagið var frekar sérstakt. Fyrst fannst mér það ekkert svakalega flott, svo fannst mér það allt í lagi og svo í dag finnst mér það frekar flott bara. Mæli með þessu lagi...
Lykke Li - Little Bit
hands down
i'm too proud for love
but with eyes shut
it's you i'm thinking of
but how we move from A to B?
it can't be up to me
'cause you don't know
eye to eye
thigh to thigh
i let go
i think i'm..
a little bit, a little bit
a little bit in love with you
but only if you're
a little but, a little bit, a little bit
in lo-lo-lo-lo-love with me
oh
ooo-ooo...
and for you i keep my legs apart
and forget about my tainted heart
and i will never ever be the first
to say it
but still I,
yes you know I..I..I..
i would do it,
push a button
pull a trigger,
climb a mountain
jump off a cliff,
'cause you know baby
i love you love you a little bit
i would do it, i would say it
i would mean it, we could do it
it was you and i and if only i..
i think i'm
a little bit, a little bit
a little bit in love with you
but only if you're
a little but, a little bit, little bit
in lo-lo-lo-lo-love with me
come here, stay with me
stroke me by the hair
'cause i would give anything, anything
to have you as my man (2X)
a little bit, a little bit
a little bit in love with you
but only if you're
a little but, a little bit, little bit
in lo-lo-lo-lo-love with me
Dagný sem er pínkulítið skotin í Barcelona
GayxampleDagný Björk Arnljótsdóttir
Hverfið okkar, L'Eixample, á sér uppnefni. Gayxample. Við búum víst í hommahverfi Barcelona. Engin furða að við sjáum karlmenn haldast í hendur og káfa á rössum hvors annars út um allt. Þess vegna leið okkur voðalega vel í Razzmatazz klúbbnum í gær þar sem voru fullt af gagnkynhneigðum mönnum. Okkur fannst klúbburinn geðveikur og við ætlum þangað aftur. Í aðalsalnum er spiluð indie tónlist og þar héldum við okkur allt kvöldið. Hver slagarinn á fætur öðrum tryllti salinn og stundum fannst mér eins og ég væri kominn á Pukkelpop. MGMT, Bloc Party, The Killers og fleiri og fleiri. Svo ekki sé minnst á uppáhaldslagið mitt í augnablikinu Sex on Fire með minni heittelskuðu hljómsveit Kings Of Leon. Þetta var geggjað.Annars fórum við í smá túristaferð í gær. Kíktum á safn þar sem "Morðið á safninu" sýning var. Við urðum fyrir pínu vonbrigðum því þetta var einhvers konar leikur. Við sáum glæpavettvang og svo áttum við að reyna að finna út hver morðinginn var með hjálp ýmissa staðreynda. Pínu spes. Eftir þetta speees safn tókum við rölt í gamla bænum sem er ótrúlega fallegur og kíktum inn í kirkju þegar brúðkaupi var nýlokið.Á næstu dögum ætlum við svo aðeins að fræðast um hann Gaudi vin okkar og kannski skella okkur í dýragarð. Mamma skammaði mig nefnilega um daginn fyrir að vera ekki búin að skoða neitt hérna í borginni en við erum alveg búnar að skoða. Eigum bara helling eftir! Það er svo mikið hægt að gera hérna að ég er ekki viss um að við komumst yfir það.
Þetta var bara svona pínu blogg. Vídjókvöld í kvöld hjá okkur sambýlingunum :P
