Ađalvalmynd

Prófíll

Auglýsing

Símanúmer á Spáni

0034605601398

Klukkan

Könnun

Bestu ţćttirnir?

Innskráningar kubbur

Gagnasafn

MIERDA!Dagný Björk Arnljótsdóttir

Í frímínútum í dag settumst ég og Arna í garðinn með nestið okkar. Sólin skein, hitinn var góður og konan sem sat á móti okkur var að borða samloku. Ég kláraði heimalagaða nestið mitt (samloka) og Arna var að borða epli. Vegna veðurs var mikið af fólki í garðinum, fólk var að reykja, aðrir að gera teygjuæfingar og sumir að tala við nunnuna sem heitir "Caroline sem elskuð er af Jesú". Ég er ekki að djóka með þetta. Hún skrifaði nafnið sitt svona á marga lista. En allavega. Arna og ég sátum í mestu makindum þegar dúfa skeit allt í einu á Örnu. Ég var svo hissa að ég vissi eiginlega ekki hvað ég átti að gera! Arna greyið fékk dúfukúk á hausinn og í buxurnar, kannski annars staðar líka! Ég fékk bara pínulítinn kúkadropa á gallabuxurnar mínar og pínulítið á töskuna mína. En þetta var svo fyndið! Ég held ég hafi bara ekki fattað að hlæja. Enginn annar tók eftir þessu, nema þeim hafi bara verið alveg sama. Hmmm

Síðan við komum hingað hefur bara ein sjónvarpsstöð verið í gangi. Það er tónlistarstöð þar sem allskonar tónlist er spiluð. Ég var alltaf að sjá myndband með Lykke Li sem er sænsk söngkona og lagið var frekar sérstakt. Fyrst fannst mér það ekkert svakalega flott, svo fannst mér það allt í lagi og svo í dag finnst mér það frekar flott bara. Mæli með þessu lagi...

Lykke Li - Little Bit

hands down
i'm too proud for love
but with eyes shut
it's you i'm thinking of
but how we move from A to B?
it can't be up to me
'cause you don't know
eye to eye
thigh to thigh
i let go

i think i'm..

a little bit, a little bit
a little bit in love with you
but only if you're
a little but, a little bit, a little bit
in lo-lo-lo-lo-love with me
oh

ooo-ooo...

and for you i keep my legs apart
and forget about my tainted heart
and i will never ever be the first
to say it
but still I,
yes you know I..I..I..
i would do it,
push a button
pull a trigger,
climb a mountain
jump off a cliff,
'cause you know baby
i love you love you a little bit
i would do it, i would say it
i would mean it, we could do it
it was you and i and if only i..

i think i'm
a little bit, a little bit
a little bit in love with you
but only if you're
a little but, a little bit, little bit
in lo-lo-lo-lo-love with me

come here, stay with me
stroke me by the hair
'cause i would give anything, anything
to have you as my man (2X)

a little bit, a little bit
a little bit in love with you
but only if you're
a little but, a little bit, little bit
in lo-lo-lo-lo-love with me

Dagný sem er pínkulítið skotin í Barcelona

Athugasemdir

1
vilhelm skrifar:
Mæli enn frekar með Loving Hand remixinu af þessu lagi, það hefur fengið að ganga í græjunum hjá mér undanfarna daga..
22. október 2008 klukkan 01:53
2
Magnea Freyja skrifar:
HAHAHAhahahah vá en fyndið! Greyið arna... sem betur fer er hún ljóshærð :D
22. október 2008 klukkan 11:09
3
HAHAHAHAHHAHHAHAHAHA mierda!! vá hvad tad er nu leidinlegt ad fá dúfukúk á hausinn á sér madur! shaesh!
en ég er í Vigo, sem er bara beint fyrir ofan portúgal og tekur ekki nema kannski hálftíma ad keyra til portúgal madur:D ég skelli mer tangad vid taekifaeri! en ég elska spán, ég aetla aldrei heim.. hhe juju en hvad verdid tid lengi her:)?

chao
22. október 2008 klukkan 11:26
4
Dóra skrifar:
Haha, greyið Arna. ég er alltaf svo hrædd um að þetta gerist fyrir mig, en hefur ekki gerst enn 7-9-13
Barcelona alveg málið?
22. október 2008 klukkan 14:02
5
Æiii.. þetta sýnir bara að maður getur lifað eins og í bíómyndunum. Algjörlega. Þetta er eins og rómantísk gamanmynd. Hún á bara eftir að finna draumaprinsinn en það ætti þá að vera einhver sem hún hitti þennan sama dag. Best hefði þó verið ef hann hefði orðið vitni af þessu. Hver veit kannski sá hann þetta og mun svo koma fram seinna.
Leiðinlegt að þetta hafi gerst í frímínútum sem þýðir að þið hafið væntanlega átt eftir einhverja tíma?
26. október 2008 klukkan 16:07
6
Dagný Björk skrifar:
Vilhelm: Nei sæll og blessaður! Já ég tékkaði á þessu lagi og það er bara nokkuð gott, ætli þetta fái ekki að spilast svona þegar við erum á leiðinni út :P

Magnea: Já sem betur fer. En það skiptir engu, hún var samt með kúk á hausnum! hehe

Fanney: Já endilega að kíkja til Portúgal, það er eitthvað sem ég á eftir að gera en stefni vonandi á bráðlega. Ég verð hérna á Spáni alveg fram í febrúar, mars kannski bara. Ég er ekkert að fara á klakann strax.

Dóra: Já Barcelona er alveg málið. Fíla þetta alveg í botn. Vonandi hefur ekkert (einhver?) kúkað á þig nýlega!

Katrín: Haha já við áttum tvo tíma eftir. Úff... kannski hinn sænski Jon fari frá kærustunni sinni og finni ástina hjá Örnu. Vonandi, vonandi! :)
26. október 2008 klukkan 17:40

Skrifa athugasemd

Ađrir bloggarar

Litlir englar

Leit