haha katrín - ha? já okei, stundum þarf bara að beita ströngum aðferðum. ég er nefnilega sammála ykkur, mér finnst svona gæjar í einu orði sagt; ógeðslegir.
þessar myndir gáfu mér saknaðarsting í hjartað.
ég sakna ykkar. ég sakna þín katrín. æji.
Dagný Björk
ChupitosDagný Björk Arnljótsdóttir
Ég var ótrúlega hress í dag þó að ég hafi verið úti til 6 - 6.30 í morgun. Við fórum á uppáhalds staðinn okkar í augnablikinu, Razzmatazz, þar sem bara skemmtilega tónlist er spiluð. Já. Einungis skemmtilega tónlist. Ég fer ekki ofan af því. Kvöldið byrjaði upp á þaki eins og vanalega og þar söfnuðum við fólki saman á djammið. Ég fékk smá Brekkugötu fíling þegar fólkið kom allt í íbúðina okkar áður en við fórum út úr húsinu. Það var voða gaman. En við erum komnar í þá rútínu að byrja alltaf á Gato Negro áður en lengra er haldið. Ég er búin að setja mér reglu: ég má ekki drekka neitt sem kveikt er í. Það býður bara upp á allsvakalegan hausverk daginn eftir. Etir eitt skot á Svarta kettinum fórum við á Razzmatazz og dönsuðum og dönsuðum og dönsuðum. Vorum örugglega 15 - 20 saman og það var bara helvíti skemmtilegt. Það eina sem pirraði mig við þetta kvöld voru ógeðslegir karlmenn. Karlmenn sem nudduðu miðsvæðinu í rassinn á þér, eða einhverjum öðrum gaur, gaurar sem snertu hárið á þér í gríð og erg og settu lappirnar sínar á milli fótanna á þér. Viðbjóður.Ég hef samt eiginlega bara sagt frá ógeðslegu gaurunum sem ég hef hitt. Það eru samt fullt af fínum gaurum hérna, og nokkrir sem standa meira að segja upp úr en það er alltaf gaman að tuða yfir þeim ógeðslegu! haha
Í dag vaknaði ég um eitt leytið, skellti mér í sturtu, lagaði aðeins til og vaskaði upp eftir gærkvöldið og beið eftir að stelpurnar vöknuðu. Lina kom svo í stutta heimsókn og spurði hvort við vildum ekki fara á ströndina með henni, Elenu og Miku (eða hvernig sem það er nú skrifað) og við gerðum það. Það var ekkert svakalega heitt en ég og Lina skelltum okkur í sjóinn. Það var ótrúlega frískandi og gott, sérstaklega þar sem helgin einkenndist meira og minna af drykkju eða þá að liggja í rúminu með hausverk.
Manuel, eða Afi eins og við viljum kalla hann núna, er næturvörðurinn hérna í blokkinni. Hann er æði. Á þriðjudaginn ætlar hann að elda fyrir okkur Paellu! Við fórum nefnilega út að borða paellu um daginn og urðum fyrir pínulitlum vonbrigðum... eða ég allavega. Ég hélt að það væri hægt að fá eitthvað annað en sjávarmat í þennan rétt en á staðnum sem við fórum á (sem var kannski ekkert sérstakur) var bara hægt að velja á milli þess eða grænmetis. Við sögðum Manuel frá þessu og þar sem hann er nú meistari í paellu gerð ætlar hann að gera upprunalegu uppskriftina sem er með kjúkling. Ég get ekki beðið.... mmmm...
Jæja... held að pizzan okkar sé að verða tilbúin. Við erum meistarkokkar hérna. Óheppin þið að komast ekki í mat til okkar.


Athugasemdir
4
Magnea Freyja skrifar:
Þú fórst á ströndina.. - ég gróf mig út í gær og þurfti í alvorunni að moka af bílnum, svo notaði ég kúst til að taka restina og svo varð ég að skafa klakann af honum. Nice. Áðan kom í fréttum að það hafi ekki verið svona mikill snjór á Dalvík síðan fyrripartinn á 20. öldinni...! :)
Gott að gamli maðurinn gefur ykkur að borða!
Gott að gamli maðurinn gefur ykkur að borða!
27. október 2008 klukkan 19:04
5
erla skrifar:
Fokk þessi paella var svo geðveikt góð. Já, fokk segi ég. Ætli Man(u)el væri til í að elda svoleiðis aftur handa okkur? Mmmm...
31. október 2008 klukkan 00:09
6
Heiđa Björg Guđjónsdóttir skrifar:
Hahaha ég skil ekki útlenska karlmenn, ţeir eru í flestum tilfellum ógeđslegir. Manuel hljómar krúttlegur. Mig langar ađ djamma međ ykkur.
04. nóvember 2008 klukkan 12:09
7
erla skrifar:
Veistu Dagný, ég sakna þín núna.
15. nóvember 2008 klukkan 22:10


Sko ef það er eitthvað vesen með þessa gaura sem nudda miðsvæðinu upp að ykkur þá verðið þið bara að taka Védísar-lookið á þá. Það er alveg ískalt og segir meira en mörg orð. Oft gott að senda þeim bendingar um að 'back-off' með höndunum. Spyrjið bara Védísi hvernig þið eigið að bera ykkur að.
Þið eruð svo sætar.