Dagný Björk
Useless informationDagný Björk Arnljótsdóttir
Þið sem hafið komið hingað heim til mín hafið kannski litið aðeins inn í herbergið hennar Stefaníu. Það er eins og regnbogi hafi sprungið þarna inni. Hún á óteljandi bangsa í öllum stærðum, gerðum, litum og krúttleika, óteljandi barbí/Bratz/PollyPocket/MyScene dúkkur, óteljandi glingurdót og virkilega mikið af óþarfa BurgerKing/McDonalds/KFC drasldót sem engum finnst skemmtilegt. Svo við systurnar tókum okkur til og tókum herbergið hennar í gegn. Mér fannst nokkuð gaman að fara í gegnum allt barbídótið hennar því þar fann ég fullt af drasli sem ég átti þegar ég var lítil. Á botninum í kassanum var uppáhaldsdúkkan mín, klædd í drusluföt með allt hárið í einni stórri flækju. Mér fannst það pínulítið sorglegt svo systir mín klæddi hana í fínan kjól og hún fékk að vera efst í kassanum með hinum dúkkunum. Ég held það breyti samt lítið samfélagsstatusnum hennar, hún er og verður alltaf gamla dúkkan sem enginn vill leika með. Hvernig getur gamla barbí keppt við lauslátu bratz druslurnar? Og með "barbí" meina ég stelpur á mínum aldri og með "lauslátri bratz druslu" á ég við busastelpur. haha djók. Fattaði þetta bara þegar ég las barbí setninguna aftur.Vitiði hvaða mynd er í sjónvarpinu núna? 10 things I hate about you. Hún er svo æðisleg! En mamma nennir ekki að horfa á hana. Finnst hún leiðinleg. Kommon? Heath Ledger Bad Boy sem verður svo yndislegur? Getur ekki klikkað. Ég sá samt á imdb.com að það sé að koma ný 10 things I hate about you. Jább... glatað.
Ég er byrjuð í ræktinni með mömmu og ég verð bara að segja að ég er bara nokkuð ánægð með sjálfa mig. Ég hef sjaldan verið svona dugleg. Kannski finnst mér það bara vegna þess að hinar gömlu konurnar í ræktinni geta ekki neitt. Ókei það er ekki bara gamalt fólk í ræktinni. Á milli fimm og sjö koma stóru strákarnir og lyfta. Um daginn labbaði einn spánverjinn á sterunum inn og öskraði eitthvað á félaga sinn sem var í hinum enda salsins, stökk á eitt tækið og byrjaði að lyfta, öskraði aðeins meira svo allir tækju örugglega eftir honum og bætti við lóðum. Þetta fannst mér sérstakt. En svo er stelpa í ræktinni sem er með svo fallegt hár! Það er mjög sítt og fallega liðað, pínulítið ljóst en líka pínulítið rautt. Mig langar í þannig hár.
Ég hef verið að fylgjast með fréttunum núna í sambandi við öll þessi mótmæli og mér finnst þetta bara nokkuð gott hjá fólkinu! Ég er stolt af þeim sem standa þarna úti tímunum saman og berja í potta. Sýnir bara að við látum ekki ganga yfir okkur! En svo finnst mér þeir sem eru þarna greinilega bara til þess að reyna að koma á einhverjum átökum við lögregluna algjör fífl. Þetta er svona fólk sem veit ekki rassgat hvað er í gangi og vill bara pirra lögguna. Kastið eggjum í alþingið, lemjið í potta og öskrið en ofbeldi þarf ekki að vera með í mótmælum. Þessir lögreglumenn eru að vinna sína vinnu, ef þeir væru ekki þarna væru einhverjir vitleysingar búnir að gera eitthvað sem þeir sæju eftir.
Jæja... held ég sé búin að tjá mig nóg hérna.
Que te vayas bien :)
Athugasemdir
(Ég er sammála mótmælendakaflanum í einu og öllu)
(Ég er með strengi eftir blakæfingu þar sem ég sökkaði mega mikið)
(Ég átti líka eina barbídúkku sem var uppáhalds en svo átti ég líka eina spari og hún átti líka alveg sess í barnshjartanu mínu)
Heimurinn er að fara til fjandans, sbr. ofbeldisseggina sem setja svartan blett á mótmælin sem eru annars friðsamleg, og sbr. Bratz dúkkurnar.
Ég tinna og júlía kíktum aðeins á mótmælin um daginn, eitt kvöldið eftir kaffihús, og fannst mikið til koma. Ofboðslega mikið af fólki var samankomið um ellefuleytið á miðvikudagskvöldi held ég - þetta var eins og í bíómynd or some.
Ánægð með þig í ræktinni. Þú ferð bara að lyfta með þessum gæjum:)
góð samlíking hjá þér dagný, virkilega góð.
Katrín: Já við erum greinilega á sömu blaðsíðu í þessu máli! Vanmetið starf finnst mér, ég væri alveg til í að vera lögga.
Ég átti nokkrar barbí. Ég átti meira að segja Fríðu (og dýrið) dúkku og Mjallhvít sem ég hélt mikið upp á en ég var svo góð að gefa Mjallhvíti til fátæks barns einhvers staðar í útlöndum. Ég saknaði hennar samt alltaf. haha
Védís: Já kannski hætta ungar stelpur núna að vera með korselett (til að ýkja mjaðmirnar) og reyna að stækka hausinn á sér með öllum tiltækum ráðum! Mér finnst ekkert fallegt við þessar dúkkur. Og að sjá sum fötin sem þær ganga í. Skammarlegt.
Ég er stolt af ykkur stöllum að hafa kíkt á mótmælin. Mig langar að sjá þetta.
Ragnhildur: Haha já þær eru of flottar til að vera óléttar. Þær fara bara í fóstureyðingu! hahaha Eða eiga barnið áður en þær fá slit á magann. Hverjum er ekki sama um óþroskað barn? Maginn verður að vera í lagi.

Hahah, ánægð með þig og þína rækt. Mátt samt til með að reyna að lyfta með þessum gaurum, þeir virka að vera þinn tebolli. Tebolli fyrir barbídúkkur.
Ég er sammála mótmælakaflanum.