Dagný Björk
Dagný Björk Arnljótsdóttir
Tilkynning Tilkynning
Hér með ætla ég að taka mér smá frí í blogginu vegna þess að ég hef ekki frá neinu að segja.
Kannski ég komi með eitthvað skemmtilegt þegar mér dettur eitthvað skemmtilegt í hug, en ekki bíða of spennt.
Takk fyrir mig (í bili)
Dagný :)

punktar :PDagný Björk Arnljótsdóttir
Ég sá fram á alveg heljarinnar færslu ef að ég myndi ekki taka hana í punktaformi og ég er bara ekki í neinu stuði til að koma með tveggja blaðsíðna ritgerð um seinustu daga.
- Prófin búin! aaaaahhhhhhhhh.... svooooo gott!
- Mamma og pabbi komu á fimmtudaginn og tóku mig með sér suður á laugardaginn. Það er alltaf gaman að hitta foreldra sína! :)
- Á laugardagskvöld var trallað svolítið. Ég, Erla og Katrín vinkona hennar Erlu fórum á Hressó og þar hitti ég hana Rannveigu mína! Hún er alltaf hress. Þó að loftið þarna inni væri eins og hjá ársþingi tölvunörda þá skemmti ég mér alveg ágætlega. Merkilegt hvað reykingarlykt dregur úr svitalykt á skemmtistöðum! hmm... :P
- Við Erla komum heim klukkan hálf átta á sunnudagsmorgni eftir mjög asnalega leigubílaferð. Ég svaf í 3 og hálfan tíma því ég þurfti að vakna klukkan 11, fara í sturtu, vekja skrímslið í hellinum, betur þekkt sem Erla, og saman forum við í afmælisgjafaferð fyrir afa. Það tókst, þó ég hafi ekki verið sú hressasta þennan daginn.
- Ótrúlega gaman að hitta alla ættingjana mína þó að skotin hafi flogið hægri vinstri. Rauðhærðir fá heldur ekki frið í kringum eigin fjölskyldur. Helvítis rasistar allt saman! Haha :P
- Á mánudaginn fórum ég og mamma aftur norður en hún fór suður aftur daginn eftir og svo til Spánar á fimmtudaginn.
- Um helgina verður djamm!!! Hver er með???
- Keppni!!! Ég, Védís og Ragnhildur erum í keppni um besta drykkinn fyrir jónsmessudjammið. Minn drykkur gengur ekkert alltof vel! :S
Æi segjum þetta bara gott. Þarf að fara að taka úr töskunum mínum… Ég á endalaust af drasli! Ohhhh…
Dagný Björk Arnljótsdóttir
Klukkan er rúmlega hálf fjögur og ég ligg upp í rúmi, enn í fötum sem anga eins og öskubakki og er að blogga. Ástæðan er Greys. Ég get ekki hugsað mér að fara að sofa eftir síðasta þáttinn í þriðju seríu. Þessi þáttur tekur svo mikið á! Aldrei lognmolla í kringum þetta fólk.En svona að öðru, þá var ég að koma heim. Í kvöld var spyrlagleði í boði Gallup. Farið var á KEA og borðað svakalega fancy mat. Í forrétt var hörpuskel, lambakjöt í aðalrétt og súkkulaðikaka í eftirrétt. Ég var ekkert alltof sátt við lambakjötið en ég er gikkur þannig að ekki taka mark á mér. Ég smakkaði þó hörpuskelina og ég er sammála fólkinu sem sat með mér á borði, þetta var eiginlega bara alveg eins og Ora fiskibollur.
Eftir þessa spyrlagleði, sem var líka pínu kjánaleg, skelltum við Ragnhildur, Erla og Védís okkur á Kaffi Karólínu. Þar var setið, sötrað og spjallað. Voðalega kósý.
Það er svo langt síðan ég hef hlustað á eitthvað sem lætur mig fá gæsahúð. Ég er komin með svo mikið ógeð á tónlistinni í tölvunni minni. Það vantar eitthvað. Einhverjar uppástungur?
Dagný Björk Arnljótsdóttir
Ég er búin að gleyma hvernig það er að borða ætan mat á hverjum degi, getað setið í sófa og horft á sjónvarpið, þvegið þvott án þess að eitthvað týnist eða eyðileggst og boðið vinum í heimsókn þó það sé próftíð. Hvernig er þetta í dag? Er líf eftir vistina eða er þetta eins gott og það gerist?Hey! Allir búnir að kjósa? Sko ykkur! :) Mér finnst ég vera svo fullorðin.
Eurovision á morgun. Við komumst pottþétt ekki áfram. Það kemur aldrei neitt gott fyrir rauðhært fólk! haha :P We are doooooooomed!
Æi hef ekkert skemmtilegt að segja. Kem með skemmtilegra blogg seinna!
Strákur eđa stelpa?Dagný Björk Arnljótsdóttir
GUY PART (no matter if your a girl or a guy)( ) You love hoodies
(x) You love jeans
( ) Dogs are better than cats.
( ) It's hilarious when people get hurt
(x) You've played with/against boys on a team.
( ) Shopping is torture
( ) Sad movies suck
( ) You own an XBox
(x) played with hotwheel cars as a kid
( ) At some point in time you wanted to be a firefighter.
( ) You own a DS, PS2 or Sega.
( ) You used to be obsessed with Power Rangers.
( ) You watch sports on TV
(x) Gory movies are cool.
( ) You only go to your dad for advice.
( ) You own like a trillion baseball caps.
(x) You like going to football games
( ) You used to/do collect baseball cards.
( ) Baggy pants are cool to wear.
( ) It's kinda weird to have sleepovers with a bunch of people.
(x) Green, black,red, blue or silver are one of your favorite colors
(x) You love to go crazy and not care what people think.
(x) Sports are fun too.
( ) Talk with food in your mouth
( ) Wear Boxers
( ) Sleep with your socks on at night.
total: 8 = 40%
Now add the numbers up and multiply it by 5
----------------------------------------------------------------------------------
GIRL PART (no matter if your a girl or a guy)
(x) You wear lip gloss.
(x) You wear eyeliner
( ) You have some of the same shirts in different colors
( ) You wear the color pink
(x) Go to your mum for advice.
( ) You consider cheerleading a sport/perv.
( ) You hate wearing the color black.
(x) You like shopping or just hanging out at the shops.
(x) You like getting manicures and/or pedicures.
(x) You like wearing jewelry.
( ) Skirts are a big part of your wardrobe.
(x) You don't like the movie Star Wars.
( ) It takes you around 1 hour to shower get dressed and put on make-up and accesories.
( ) You smile a lot more than you should. hahah
(x) You have more than 10 pairs of shoes.
(x) You care about what you look like.
(x) You like wearing dresses when you can.
( ) You love romance movies
(x) You wear girlie underwear
(x) Used to play with dolls as little kid
( ) Like putting make-up on someone else for the joy of it
( ) Like taking pictures of yourself when you're bored.
Total= 12 = 60
Multiply It by 5
Hahaha... þetta er áhugavert
Nenni ekki að blogga svo ég setti svona rugl hérna! :P
Sjáum nú öll hver perrinn er!Dagný Björk Arnljótsdóttir
Ragnhildur ( 31% / 17 atkvæði )Dagný ( 24% / 13 atkvæði )
Tinna ( 15% / 8 atkvæði )
Magnea Dröfn ( 15% / 8 atkvæði )
Arna ( 11% / 6 atkvæði )
Valgerður ( 4% / 2 atkvæði )
Eygló ( 0% / 0 atkvæði )
Magnea Freyja ( 0% / 0 atkvæði )
Við sjáum nú öll hver perrinn er hérna! Ragnhildur Hólm hefur fengið titilinn perri ársins 2007!
En ég ætla ekki að hafa lengri orð um þetta, fólk má tjá sig að vild!
Er farin að baka!

Sunnudagur međ rjóma á!Dagný Björk Arnljótsdóttir
Í dag vaknaði ég klukkan átta og stökk úr rúminu glöð í bragði. Dagurinn í dag yrði alveg yndislegur hugsaði ég með mér. Inn í ísskápnum fann ég langþráða jarðarberjaskyrið mitt og ávextina mína í skyrbústið mitt. Eftir þennan holla og næringarríka morgunmat leit ég í kringum mig og sá að herbergið var alveg hreint svo að ég hafði tíma til að skella mér út að skokka í veðurblíðunni. Ég tók stuttan rúnt um Akureyri, tók aðeins tvo tíma og var svo hress og endurnærð þegar ég kom heim. Í hádeginu fór ég með vinkonunum út að borða og fékk svo þennan dýrindis salatdisk! Eftir matinn ákvað ég að keyra í Mývatnssveitina og taka einn góðan göngutúr í fallegu náttúrunni þar! Dagurinn var alveg yndislegur, veðrið gott og fólk svo brosmilt. Það ætti að vera sunnudagur á hverjum degi! Ahhhhhh...Jeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeee ræt!
Látum þetta bara gott heita... *Gubb*

Dagný Björk Arnljótsdóttir
Miðað við kommentin hér að neðan þá eru fleiri orðnir pínu geðveikir en bara ég. :PÉg komst að því að Stefanía er algjör snillingur. Við erum búin að vera á ferðinni um Andalúsíu í þrjá daga og hún kemur mér alltaf á óvart. Við stoppuðum í bæ sem heitir Mojacar og á flestum húsunum þar voru járnhringir til að festa blómapotta. Þetta sagði hún við mig:
Stefanía: - Dagný. Veistu hvað þetta þarna er (og bendir á járnhringina).
Ég: - nei, endilega segðu mér það.
Stefanía: (mjög alvarleg á svipinn) - Í gamla daga þá fór fólk og hengdi sig í þessum hringjum.
Ég:(gapandi) -Jáááaááááááá..... uhh... okei... uuu...
Ég: - nei, endilega segðu mér það.
Stefanía: (mjög alvarleg á svipinn) - Í gamla daga þá fór fólk og hengdi sig í þessum hringjum.
Ég:(gapandi) -Jáááaááááááá..... uhh... okei... uuu...
Mér fannst þetta bara endalaust fyndið. Við sáum líka rör sem leiddi út úr húsi. Ég spurði hana hvað hún héldi að þetta væri og þetta var svarið:
Stefanía: -Þegar að til dæmis hæna deyr þá eldar fólkið hana og treður henni í gegnum þetta gat til þess að fátæka fólkið sem á heima á götunni geti fengið kjúkling að borða.
Ég vissi ekki alveg hvað ég átti að halda þarna. Amma kom líka með nokkur golden moments. Hún benti okkur á það að ef við sæjum turna einhvers staðar þá væri það örugglea kirkja. Hahahaha... nei er það??? hehe :P
Á leiðinni heim í gærkvöldi var Stefanía með svo mikinn svefngalsa að ég var farin að hafa áhyggjur. Ég var í sakleysi mínu að horfa út um gluggann þegar ég heyri mjög svo pirrandi hljóð. Ég lít við og þá er Stefanía að dansa í sætinu sínu... svona eins og egyptanir gerðu. Skiljiði? Vá hún er svo mikið krútt! haha...
En þið þarna sem lesið bloggið mitt endilega komið með fleiri skemmtilegar sögur. Já... skemmtilegar... Það orð lýsir nákvæmlega sögunum úr sveitinni! Keep up the good work! :D
Blogg eftir pöntun!Dagný Björk Arnljótsdóttir
Hmmm... Má bjóða þér bragðgott slúður með blogginu? Eða léttsteikta lífsreynslusögu? Kannski fynndist þér betra að fá hráa bullsögu? Æi því miður, we are all out! Ég hef svo lítið að segja að það er eiginlega pínu skelfilegt. Mér finnst að þið þarna sem eruð á Íslandi verðið að koma með eitthvað slúður eða eitthvað! SEGIÐ ÉR EINHVERJAR FRÉTTIR!
Vó! Vitiði hvað ég var að fatta... Ég flýg heim föstudaginn 13. apríl!!!! *ANDKÖF!!* hehe... já eins gott ég sé ekki hjátrúarfull... hehe (paranojd hlátur) HAHAHEHEHÍHÍ... Já sjáiði hvað þið eruð búin að gera? Ég er orðin geðveik!!!
Ég var að horfa á sjónvarpið í gærkvöldi áður en ég fór að sofa og ég datt inn í einhverja mynd frá nítjanhundruðáttatíu(eðanítíu)ogeitthvað. Ég náði ekki alveg söguþræðinum en myndin var semsagt um stelpu sem vann í bíói. Þegar hún er að taka saman í sjoppunni kemur yndislega ljóshærður strákur með blá augu og byrjar að spjalla við hana. Hún bráðnar alveg og hann býður henni út seinna um kvöldið. Hún er náttúrlega þæg stelpa svo hún segir að hún skuli fara einhverntímann seinna með honum út. Eftir bíóð fer strákurinn, Charlie heitir hann víst, svo heim til sín þar sem mamma hans bíður eftir honum. Heyrðu, þar byrjar hann bara að slefa upp í mömmu sína og segist hafa fundið fullkomna stelpu fyrir hana!! Daginn eftir í skólanum fer stelpan svo að segja vinkonum sínum frá sæta stráknum sem bauð henni út. En hún veit ekki sannleikann.... dumm dumm dumm duuuuuummm! Allavega... Charlie fær að skutla stelpunni heim og fær að fara upp í herbergi til hennar. Mamma stelpunnar labbar óvart inn í herbergið þegar þau voru næstum búin að kyssast svo við vitum að það fljúga einhverjir neistar... úúúúú. Mamman byrjar að tala eitthvað við Charlie og þar er hann ekkert nema kurteisin. Kurteisin varaði ekki lengi því að á leiðinni heim er hann stoppaður af kennaranum sínum. Kennarinn byrjar að öskra á hann og segja að hann viti að Charlie er að ljúga, hann er ekki sá sem hann segist vera. Þá verður Charlie reiður og rífur af honum hendina!! Ekki nóg með það heldur breytist hann í eitthvað, úlf eða geimveru eða eitthvað og hleypur á eftir kennaranum sínum... svo komu auglýsingar og ég nennti ekki að horfa á þetta rugl.
Haha var samt að leita að þessari mynd á netinu og ég fann hana! Þessi saga er eftir Stephen King! Surprise surprise... haha
Vó leiðinlegt blogg... en jæja...
Hafið það gott um páskana!
PáskaDagný kveður!

Ákvað að blogga svona upp á fönnið! Hef svo lítið að gera í augnablikinu. Ég er ekki einu sinni með samviskubit yfir því að vera ekki að nota sólina meðan ég get, það er nefnilega svo kalt, vindur og svoleiðis vesen.
Ég, mamma og Stebba vorum að koma úr pínu verslunarleiðangri. Við fórum í Habaneras og þar fann ég mér sólgleraugu, bikiní og nærföt. Loksins, LOKSINS fann ég bikiní. Spánn er samt svo asnalegur varðandi föt. Núna þegar sumarið er að koma þá er ekki til neitt í svörtu, hvítu eða gráu. Gulur, rauður, grænn og blár eru einu litirnir sem maður sér. Fólkið gengur um eins og lifandi regnbogar, þeim finnst þetta svo töff! Allt í lagi að breyta aðeins til og klæðast litum en við erum að tala um neon bleikar buxur og appelsínugulann bol. Ugh... ég er ekki alveg að fíla það... hehe
Svo fórum við út að borða í gær. Fékk bestu pizzu sem ég hef smakkað hérna á Spáni en tónlistin sem var spiluð eyðilagði matarlystina. Spánverjar halda örugglega að það sé 1996 ennþá. Boys 2 Men og Mariah Carey alveg í botni og þjónninn, sem var pottþétt alveg flaming gay, sönglandi með á meðan hann tók niður pöntunina. Þegar ég kom með pínu athugasemd um tónlistina benti amma mín á það að þegar þau fóru þangað síðast, sem var Valentínusardagurinn, þá hafi lagið þeirra mömmu og pabba komið. Amma sagði að mamma og pabbi hafi orðið ástfangin alveg upp á nýtt og orðið svo væmin og asnaleg. Vá hvað ég er fegin að hafa ekki séð það! Hahaha
Á móti okkur búa hjón og aumingja kallinn er með alzheimer. Hann er svona um 70. Þegar við stigum út úr bílnum í dag kallaði hann á okkur út um gluggann og spurði okkur hvort að við værum með lyklana að útidyrahurðinni hjá sér. Konan hans læsir hann nefnilega alltaf inni þegar hún þarf að fara eitthvað!!!! Pæliði í því! Kallinn á svo bágt, hann er bara eins og lítið síli í búri!! Hann hengur bara inni, kannski allan daginn ef að konan þarf að vera það lengi að heiman. Kúgaður? Já ég held það.
Æi ég er með hiksta...