Aðalvalmynd

Prófíll

Auglýsing

Símanúmer á Spáni

0034605601398

Klukkan

Könnun

Bestu þættirnir?

Innskráningar kubbur

Gagnasafn

Pifff.... :SDagný Björk Arnljótsdóttir

Ísland tapaði á móti Danmörku. Af hverju getum við aldrei unnið neitt? æi... ohhh... vorum svoooooooooooooo nálægt!!!

En hey, strákarnir stóðu sig vel. Ef ég ætti 1000 kall aflögu þá myndi ég sko hringja í númerið sem kemur alltaf á skjáinn! :P

Gerum bara betur næst!

PrófavikanDagný Björk Arnljótsdóttir

Lög prófavikunnar: Benny Benassi - Satisfaction, Fedde Le Grande - Put your hands up for detroit, Prodigy - No good og svo Damien Rice diskurinn á kvöldin þegar kemur að svefninum.

Drykkur prófavikunnar: Cult, Magic, Swiss Mocca eða hvað sem er með pínu koffíni.

Stress prófavikunnar: Nóttin fyrir söguprófið. úff...

Matur prófvikunnar: Tjahh... Nammi er kannski ekki matur en það er eiginlega það eina sem fer upp í mig á þessum tíma.

Mynd prófavikunnar: Mest umtalaðast mynd núna er Return of Sandy. Hef nú ekki verið svo heppin að sjá hana en það er víst fjögurra klukkustunda lessuklámmynd. Já skemmtilegt!

Hápunktur prófavikunnar: Þegar MA vann Flensborg í Gettu Betur. Arna mín fer í sjónvarpið! hehe... Ekki það að vinna Flensuna hafi verið eitthvað erfitt! hehe

Skemmtilegasta prófið: Það verður eflaust bóklega ökuprófið. Jamm þið lásuð rétt... ég er að fara að taka það! úúúúú

Erfiðasta prófið: Sálfræði er nú reyndar ekki búin en sagan á vinninginn enn sem komið er.

Pirringur prófavikunnar: Morguninn fyrir íslenskuprófið. Fór að sofa klukkan fimm og var vakin tæplega níu á mjög pirrandi hátt. Vatn og læti. Hahahaha ég á svo eftir að hefna mín!
Svalur

Krútt prófavikunnar: Magnea Freyja fær þann titil eftir eflaust svakalega skemmtilegan þrautakóng hjá henni og vinum hennar sem ég og Magnea Dröfn urðum vitni að! haha

Staður prófavikunnar: Setustofan. Ekkert jafn kósý og að taka með sér sæng og kodda og liggja í sófanum, lesa glósur og hlusta á Prodigy.

Setningar prófavikunnar: Efra-súper? Farðu í rassgat! TSÚ VEGA EINKUTÍMANN AD HLUZTA Á TÍROLÍMÚSÍK! Færa sófa? Nei fara að sofa! Rómantííík, kertaljóóós.

Farin að læra fyrir ensku! úúúúú:P

2006 búið :SDagný Björk Arnljótsdóttir

2007 er gengið í garð. Árið var svo fljótt að líða! Hvernig er þetta hægt? En þetta var frábært ár. Það kemst pottþétt á topp fimm listann yfir bestu árin. Ég vil bara þakka öllum fyrir, þið eruð öll yndisleg!

Ég var að enda við að horfa á myndbandið sem við stelpurnar gerðum af Tinnu að fara í sturtu, muniði? Já, allavega ég fann það! http://www.zippyvideos.com/8251345083642856/mpg_0275/ Hérna er það! Gleymt í smástund en alls ekki grafið :P. Þetta rifjaði upp svo margt af gamla ganginum okkar. Á árinu sem er að líða standa Sjallaferðir að sjálfsögðu upp úr. Hver man ekki eftir því þegar að fólk ældi í bíla, var næstum nauðgað af ógeðslegum gaur/gellu, datt í gólfið eða týndi jakkanum sínum? Ahh... good times. Morgnarnir eftir djamm voru/eru alltaf frábærir. Allir myglaðir undir sæng með feitan þynnkuhamborgara í annarri og leigða dvd mynd í hinni að tala um atburði gærkvöldsins. Kodak moment! Priceless :P



Sumarið var algjört met. Hef aldrei skemmt mér jafnvel. Mývatnssveitin stendur sko fyrir sínu. Hverjum hefði dottið það í hug? ;). Lónið var stundað stíft og eins og Ragnhildur orðaði svo vel; vörka tanið. Það var alveg möst :P. Fór til Spánar og það var geðveikt. Hitti Leilu mína aftur eftir langan tíma og Mike var alltaf tilbúinn í djamm. Það minnir mig líka á páskana þegar hann fór með mig á næstum flesta barina á svæðinu á vespunni sinni. Hef aldrei þorað á svona tryllitæki (hahaha tryllitæki :P) með honum en þetta var ekkert mál!



Afmælið mitt var ágætt. Fyrsta skipti sem ég var ekki með fjölskyldunni á afmælinu mínu held ég. Takk allir fyrir að gera það eins gott og það gat orðið:**!

Færeyskir dagar voru tilbreyting, hef aldrei djammað svona mikið í Ólafsvík. Það var fínt :). Versló, eitt orð: Váhvaðþaðvargaman!

Ooooog svo kom haustið. Hitti Tinnu í Borgarnesi þar sem ég fékk far hjá henni norður. Það var svo gaman að hitta hana! Held að við höfum talað stanslaust alla leiðina til Akureyrar. Hver þarf geislaspilara? Pifff... Alveg ótrúlega gaman að hitta alla aftur, þó að ég hafi nú hitt meirihlutann um sumarið. Ég og Tinna urðum sambýlingar aftur og Ragnhildur fær nú líka þann titil þar sem hún kemst ansi nálægt því. Og ég vil bara hafa það þannig. Mi casa su casa :P.



Ég verð líka að minnast á það þegar ég og Tinna þrifum herbergið hjá Hannesi og Didda. Hef sjaldan skemmt mér jafn vel við þrif. Földum sængur og settum fullt af drasli á vegginn hjá þeim. Verð nú að segja að barnamyndirnar settu smá heimilissvip á herbergið!


Erla, Diddi og Hannes í góðu geimi á Færeysku dögunum!


Þegar við fórum til Magneu D eina helgi. Svo kósí!


Svo eru Magnea og Valgerður án efa uppáhalds nágrannarnir!


Magnea, Ragnhildur og Hemmi alltaf jafn kátur.

Æi ætlaði að setja fleiri myndir inn en ég verð að fara. Mínerva litla frænka vill dansa fyrir mig! Hahaha! Krúttið. Ég vil bara þakka öllum fyrir allt gamalt og gott!

Aðrir bloggarar

Litlir englar

Leit