Aðalvalmynd

Prófíll

Auglýsing

Símanúmer á Spáni

0034605601398

Klukkan

Könnun

Bestu þættirnir?

Innskráningar kubbur

Gagnasafn

SÓL!Dagný Björk Arnljótsdóttir

Jáhh þið lásuð rétt! Það er komin sól, loksins! Ég sit úti með tölvuna, drekk íste og sóla mig aðeins í leiðinni. Ég vaknaði um tíu leytið í morgun, fékk mér að borða, fór í sturtu og svo fórum við mamma í klukkutíma göngutúr í góða veðrinu. Þegar við komum aftur heim stökk ég í bikiníið og beint upp á þak í sólbað. Ég lá þar alveg í tvo tíma, ætlaði sko ekki að láta þetta tækifæri fram hjá mér fara. Ég hélt reynar það yrði rigning aftur í dag en veðrið hérna er stundum skrýtnara en á Íslandi, eina mínútuna er rigning og rok og hina mínútuna er glampandi sól. Ég og mamma skruppum nefnilega í göngutúr í gærkvöldi, það var pínu rigning svo við tókum regnhlífar með okkur. Þegar við erum búnar að labba í svona þrjár mínútur verður rigningin alltaf meiri, og svo meiri, og svo kemur enn meiri rigning. Næsta sem við sjáum eru heilu lækirnir sem renna út frá litlu hliðargötunum. Þá ákváðum við að snúa við og vaða heim. Vatnið náði mér stundum upp á ökkla og skórnir mínir urði vel blautir. Það er samt lúmskt gaman að vera í rigningu... ég fíla það eiginlega bara alveg í botn! Sérstaklega þegar rignir almennilega! En þetta verður þreytandi til lengdar. Vonandi heldur veðrið sér svona þangað til stelpurnar koma :)

Ókei... ég sit hérna næstum því upp við vegg og þegar ég lít til hliðar sé ég ógeðslega stóran köngulóarvef. Óh mæ god... á ég að færa mig eða sitja lengur og blogga? Ég sé ekki neina könguló.... en það er fullt af drasli í vefnum... voðalega er þetta vel gert hjá þeim... þykkur og góður vefur. Æi ég hoppa í burtu ef ég sé könguló.

Stefanía fer í ótrúlega mörg skólaferðalög og núna á miðvikudaginn er hún að fara til Alicante að horfa á bátakeppni. En þetta er engin venjuleg bátakeppni, ónei! Þetta er Volvo bátakeppni. Æi vá... þetta er án efa leiðinlegasta færsla sem ég hef skrifað. En jæja...

Mér sýnist Ella vera með forystuna í könnuninni! Stattu þig stelpa!


Ný könnunDagný Björk Arnljótsdóttir

Setti líka þessu fínustu könnun í tilefni þess að ég hef ekkert að gera! :)

Tók mér það bessaleyfi að nota nöfn nokkurra fegurðardísa sem eru annars staðar en á Íslandi

Together we made it!Dagný Björk Arnljótsdóttir

Og enn rignir! Þetta veður er virkilega að gera mig þunglynda. Það er svo miklu meira hægt að gera í góðu veðri en í rigningu. Ég get t.d. ekki farið í sund því laugin er svo köld svona í sólarlausu veðri, ég nenni ekki á markaði (gæti alveg farið en í rigningu er ekkert skemmtilegt að vera að hlaupa á milli bása til að forðast rigninguna), get ekki legið upp á þaki og lesið góða bók og get ekki borðað morgunmatinn minn úti svo eitthvað sé nefnt. Ég get náttúrlega alveg borðað morgunmatinn inni og ég get líka alveg legið hérna í sófanum og lesið bók en það er svo ekki spánarlegt. Hérna á að vera heitt og sól og fólk úti að labba á sundfötunum... jæja ætli sé ekki bara að koma október!

Systir mín kom hlaupandi með símann minn í morgun því hann hafði verið að hringja. Ég kíkti á númerið og þekkti það ekki svo ég hringdi tilbaka. Og þetta var samtalið:

Einhver: Halló
Ég: Halló, hver er þetta?
Einhver: Heyrðu þú getur bara átt þig!
Ég: Ha? uuuuu...
Einhver: Já talaðu bara við Röggu!
Ég: uuuu... ókei...

Ég hugsaði bara FOKK hvað væri eiginlega í gangi. Hver færi að hringja í mig klukkan níu á íslenskum tíma og drulla eitthvað yfir mig. Einhver enn á fylliríi? Ég var ekki að ná þessu svo ég hringdi í Ragnhildi í vinnuna. Þar sagði hún mér bara að skella á sig, síminn minn færi að hringja. Enn skildi ég ekki neitt! Svo hringdi síminn... ég tók hann upp, horfði forviða á skjáinn, skjálfhent ýtti ég á "svara" takkann og sagði lágt: halló... Þá var þetta bara Óli Már sem var kokkur á Seli í fyrra. Hahaha fyndið að heyra í honum elskunni :)

Núna er ég oficially búin að borga allt sem viðkemur Barcelonaferðinni okkar. Ég er að verða frekar spennt! Áðan fékk ég mér meira að segja í fyrsta skipti ristað brauð með osti hérna á Spáni, bara fyrir Erlu. Það var bara ágætt, ágætur ostur alveg hreint. Við verðum bara að finna Carrefour búð í Barcelona til þess að fá þennan ost, hef ekki séð hann annarsstaðar en þar. En allir aðrir ostar eru vondir. Jámm ég fer ekki ofan af því.

Systir mín fékk tvær vinkonur sínar í heimsókn áðan. Þær eru tvíburar og alveg eins. Stefanía kenndi mér að þekkja þær í sundur, önnur er með pínulítinn fæðingarblett á enninu... en ég man ekki hvor það var þannig að þetta var alveg tilgangslaust.

Jæja ætli þetta sé ekki bara ágætur endir á ágætu bloggi, þó það sé nú frekar leiðinlegt. Ágætt en leiðinlegt blogg... er það hægt? Bara eins og dagurinn minn. Dagurinn er búinn að vera ágætur en bara það... fékk mér göngutúr, raðaði dóti í hillur, skoðaði myndaalbúm, fékk mér kaffi með mömmu... hehe góður dagur :)

Á Spáni er gott að djamma og djúsa diskótekunum á! HEYDagný Björk Arnljótsdóttir

Já ég hef ákveðið að blogga aftur þó ekkert stórmerkilegt hafi gerst undanfarið. Ég er allavega komin heim til Spánar. Ég sem ætlaði að vera svo dugleg að vera í sólbaði og fara á ströndina og svona en þar sem sólin hefur ekkert látið sjá sig hef ég látið mér nægja að fara í göngutúra og í búð með mömmu. Það er samt alveg pínu kósí að hafa ekkert að gera, slaka almennilega á, ekkert stress og ekkert sem að ræður ferðinni. Ég verð komin með nóg eftir nokkra daga, eins gott að þessi sól fari að láta sjá sig!

Þegar ég beið í "check in" röðinni á Stansted sá ég að fullt af ungu fólki var á leiðinni til Alicante. Ég er ekki vön þessu, alltaf þegar ég flýg frá Íslandi þá eru næstum því bara gamalt fólk í flugvélinni. Þá fór ég að pæla í því sem Pétur sagði einu sinni í 70 mínútum. Hann vonaðist alltaf til þess þegar hann flygi eitthvert að hann myndi fá sæti við hliðiná einhverri svaka hot píu, þau myndu spjalla saman og eftir eitthvað svakalegt ástarævintýri myndu þau svo giftast, eignast mörg börn og verða gömul saman. Þetta var ágætis flug í eitthvað svona fling þar sem maður mátti ráða hvar maður sæti. Ég vonaði samt að ég fengi bara þrjú sæti fyrir mig eina, það væri alveg yndislegt! Ég allavega settist í eina sætaröðina, byrjaði á því að setjast við gluggann en snarhætti við þegar ég sá feitasta mann sem ég hef séð á ævi minni setjast í sætið bakvið mig. Svo ég settist í sætið gangameginn en þá kom eldra fólk sem vildi endilega setjast innan við mig (fuuuullt af öðrum sætum laus!) Svo ég stóð upp og fann mér laust sæti við hliðiná gömlum hjónum en sá of seint tvö auð sæti rétt hjá. Mig langaði ótrúlega mikið að færa mig þangað en mér fannst það eitthvað svo dónalegt... haha... hvar voru allir heitu strákarnir? Kannski þessi feiti hafi einu sinni verið heitur gaur. En jæja...

Vá þetta var bara ekkert merkilegt blogg! Ég fór samt í svakalega skemmtilegt innflutnings- og kveðjupartý hjá Tinnu og Hemma á laugardaginn. Það var bara nokkuð gaman!

Æi nenni ekki meira!

knús

Aðrir bloggarar

Litlir englar

Leit